|
29.08.2010 00:23:50 / laugar
Dagskrá verður afhend á fyrsta fundi. Mæting er sem hér segir fyrir utan Dalabúð Drekaskátar ( 3. og 4. bekkur) funda kl. 14:00-15:00 að auki eru tveir dagar sem þau eru til kl.17:00. Fálkaskátar ( 5. 6. og 7. bekkur) funda kl. 15:10-17:00 Dróttskátar ( 8. 9. og 10. bekkur) funda kl.15:10-17:00, þó getur verið að hluta til breytilegt fyrirkomulag
»
29.08.2010 00:22:10 / laugar
Jósep og Sunna í DS. BOOTS skelltu sér á 100 ára afmælismót kvennskáta á úlfljótsvatni í ágúst. Það ringdi mikið á þau en þetta var samt skemmtilegasta skátaútilega sem þau höfðu farið í að þeirra sögn.
»
29.08.2010 00:20:31 / laugar
það voru 25 skátar ásamt foringjum sem skelltu sér í Reykjadal á föstdag. Það var tjaldað rétt innan við réttina. Við vorum mjög heppin með veður. Skátafélagið hefur fest kaup á ýmsum útilegubúnaði í sumar. Þessi útilega var farin til að prófa dótið okkar. Þá voru gönguferðir og berjatýnsla vinsæl. Haldin var kvöldvaka og brenna um kvöldið. Það voru þreyttir og sáttir skátar sem fóru heim á laugardag. Við erum svo sannarlega tilbúin að skella okkur á skátamót með allt nýja dótið okkar :-)
»
27.05.2010 10:59:20 / laugar
Það voru 42 ferðafélagar; skátar í Dölum, foreldrar og aðrir gestir sem tóku þátt í vorferðinni okkar, sem hófst klukkan 10 annan dag Hvítasunnu. Ákveðið var að skoða sig um í heimabyggð, finna leynda staði og njóta þess að vera saman. Eins og í öðrum ferðum okkar nutum við góðvildar Sveins á Staðarfelli með rúturnar og stýrði hann annarri þeirra núna en Binni var bílstjóri á hinni rútunni. Fyrsta stopp var við Skuggafoss, sem liggur falinn spottakorn frá veginum. Flottur foss sem gaman var að sjá. Þá ókum við leið sem heitir Efribyggðarvegur, við stoppuðum þar og nutum útsýnisins yfir á Snæfellsness þar sem jökullinn skartaði sínu fegursta. Við tókum nestispásu í Ytrafellsskógi, þar var mikil blíða. Drekaskátar stjórnuðu leikjum. Þá lá leiðin að Dagverðarnesi. Vegslóði liggur út á nesið og þar er kirkja sem heitir Dagverðarneskirkja. Selma Kjartansdóttir sem er formaður sóknarnefndar tók á móti okkur og sagði okkur sögur frá því að hún var barn og ólst upp í Langey. Staðurinn hefur verið í eyði síðan 1980. Í kirkjunni er messað einu sinn á ári. Selma kom einu sinni á sumri til messu sem barn. Þetta voru hátíðisstundir og mikil tilbreyting fyrir eyjaskeggja. Að lokinni dvöl á Dagverðarnesi stoppuðum við hjá Klofningi og skoðuðum útsýnisskífuna. Trausti Bjarnason á Á beið okkar á Skarðsströndinni og fór með okkur í kolanámurnar á Tindum sem hann vann í árið 1954. Þær voru að mestu starfræktar það eina ár. Þar liggja enn minjar um starfsemi kolanámanna í fjöruborðinu og hluti af bryggjunni stendur enn. Síðasta stoppið okkar var Laugar. Þar fengu allir að fara í sund í góða veðrinu og að lokum grillaði Binni pylsur ofan í mannskapinn. Helga og Anna kvöddu skátana og þökkuðu þeim fyrir góðan vetur. Um klukkan 18:00 voru allir á leið heim eftir vel heppnaða vorferð um Strandir. Skátafélagið þakkar öllum þeim sem lögðu okkur lið við þessa ferð kærlega fyrir. Stjórn og foringjar skátafélagsins Stíganda í Dalabyggð.
»
25.05.2010 23:13:09 / laugar
Síðasti dróttskátafundur starfsársins var í dag. Við náðum að klára hnútinn, byrja á dagbókarskrifum, skipuleggja Reykjavíkurferð, fara í ljósmyndamaraþonn og margt fleira. Eftir miklar pælingar í vetur ákváðum við að dróttskátasveitin okkar heitir D.S BOOTS....og afhverju ?!?! skyldi það nú vera :-)
»
22.05.2010 21:35:56 / laugar
Föstudaginn 28. maí skundar dróttskátasveitin til Höfuðborgarinnar. Búið er að panta í Klifurhúsinu. Gist verður ein nótt og síðan skellt sér í Dalina á ný þar sem að Evróvisjon verður tekið með stæl..
»
22.05.2010 21:28:51 / laugar
Þessi útilega er fyrir Fálkaskáta og eldri. Skráningu er lokið og eru 14 skátar skráðir fyrir utan foringja. Nánari upplýsingar síðar.
»
22.05.2010 21:24:24 / laugar
27 skátar hafa skráð sig í vorferðina mánudaginn 24. maí. Binni keyrir rútuna að vanda. Mæting í Búðardal kl. 9:45. Brottför kl. 10. Foreldrar og aðrir velkomnir með á einkabílum. Búast má við 6 tíma ferð því við ætlum að stoppa á mörgum stöðum og skoða merka staði á leiðinni. Það eiga allir að hafa með nesti. Við endum inn á Laugum, grillum pylsur og förum í sund. Kynnumst heimabyggð betur :-). Hlökkum til að sjá ykkur.
»
22.05.2010 21:20:36 / laugar
Það var vaskur hópur skáta sem mætti við Dalabúð 6. maí í vinnugalla og tilbúin að hreinsa bæinn sinn. Skipt var í hópa og það lögðust allir á eitt að hreinsa bæinn. Árangurinn var góður og söfnuðust nokkrar kerrur af rusli að vanda. Skátar, kærar þakkir fyrir þetta flotta framtak. Stjórn og foringjar.
»
25.04.2010 10:42:16 / laugar
Foreldrar og aðrir eru velkomnir að hjálpa skátum með bæjarhreinsunina. Mæting við Dalabúð kl.15.15
»
18.04.2010 10:19:15 / laugar
Það verður skátamessa sumardaginn fyrsta í Snóksdalskirkju kl. 14 Þeir sem vilja eru velkomnir að mæta við hliðið í Snóksdal ( 300 m frá kirkjunni) kl: 13 Við verðum með leiki í 30 mín og förum síðan í skrúðgöngu upp að kirkjunni
»
18.03.2010 14:41:57 / laugar
Fréttabréfið verður afhent á skátafundi í dag, einnig verður það sent á tölvupósti.
»
18.03.2010 14:39:45 / laugar
Skátaútilega í Skátaskálann í Skorradal verð; 2000.- Skátafélagið stendur fyrir skátaútilegu í Skorradal föstudaginn 26. mars– laugardags 27. mars. Mæting á planið við Samkaup kl. 13:30 föstudag. Brottför kl. 14:00. Hafið með ykkur nesti í auka bakpoka sem hægt er að taka í rútuna. Við drekkum á leiðinni. Á dagskrá verður m.a kvöldvaka, heimsókn á náttúruleikvöll og í Skógræktina Hvammi. Heimkoma á planið við Samkaup kl. 18 á laugardag. Innifalið í verði er; rúta, gisting, allur matur frá kvöldmat á föstudag. ATH: Vinsamlegast staðfestið þátttöku fyrir kl. 22 á laugardegi 20. mars. Það er mikilvægt vegna skipulags og rútu. Þeir sem skrá sig eftir þann tíma í ferðina geta ekki reiknað með að komast í rútuna. Engar undantekningar verða gerðar í þetta sinn. Skráning á tölvupóst hjá Önnu á laugar@umfi.is, eða með komment á heimasíðu okkar við auglýsinguna, eða með SMS í síma 861-2660.
»
03.03.2010 09:49:58 / laugar
Vegna þess að árshátíð skólans er þann 25. mars verður engin skátafundur þann dag. Í staðin verður skátafundur 11. mars.
»
03.03.2010 09:48:42 / laugar
það mættu 8 skátar frá skf. Stíganda í félagsútilegu skf. Vífils. Vífill tók höfðinglega á móti okkur. Það var dagskrá frá 10-17, þá frjálstími, síðan kvöldvaka og loks næturleikur. Einnig var öllum boðið í mat. Við þökkum skátafélaginu Vífli kærlega fyrir að bjóða okkur í heimsókn.
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|